top of page
MÓÐAN GRÁA
Móðan gráa-myndir af Jökulsá á Fjöllum er titill stærstu sýningar minnar um eitt vatnsfall. Þar „kafaði“ ég í Jökulsá á Fjöllum með olíumálverkum, vatnslitamyndum og ljósmyndum. Sýningin var í Listasafni ASÍ í Ásmundarsal í öllum sölum hússins.
Grámi, þungi, kraftur og dulúð stafar af Jökulsá á fjöllum. Grámanum gerði ég skil í litlum olíuverkum á tréplötur og ólgunni og kraftinum í mjög stóru olíumálverki og óvenju stórum vatnslitaverkum.
Dulúðina dró ég fram með því að spegla og bjaga ljósmyndir af iðuköstum og straumröstum árinnar . Úr varð myndaröðin Jökulsárárar þar sem kynjaskepnur stíga fram. Árar og púkar.
bottom of page